Nu se pretează? Nu contează! Puteți returna produsele în până la 30 de zile
Cu un voucher cadou nu veți da greș. În schimbul voucherului, destinatarul își poate alege orice din oferta noastră.
Până la 30 de zile pentru returnare
Ég er fæddur og uppalinn í Napólí. Borgin sem aldrei sefur og einkennist af litríku götulífi, hlátri, dásamlegum matarilm, hreinum þvotti úti á snúru sem hangir milli bygginga og hrópum frá svölum fyrir ofan göturnar. Þrátt fyrir að hafa ekki búið í mínu heimalandi yfir 25 ár þá búa rætur mínar enn í gömlum húsum Napólí, í skuggum kirkjanna og í lyktinni af nýlöguðu kaffi sem fyllir þröng stræti. Það eru þessar rætur sem kalla mig aftur, jafnvel á löngum vetrarkvöldum norður í hafi. Þess vegna skrifa ég oft um Napólí - í skáldsögum mínum, pistlum, matreiðslubókum eða í þessum litlu smá sem þú ert um það bil að fara að lesa. Þessar smásögur eru innblásnar af raunverulegum atburðum -
Sögur sem ég hef heyrt, samtöl sem ég hef átt á leið minni um götur Napolí eða sprottnar út frá minni eigin reynslu. Þær snúast ekki aðeins um staði, heldur um andrúmsloft, hlýju og þá mannúð sem felst í daglegu lífi en slíkt er hluti af menningu Napólíbúa. Hver saga ber nafn götu, torgs eða hverfis í Napólí. Þar, á milli götumarkaðar, kaffihúsa og gamalla steinveggja, gerast litlar smásögur sem tengja fólk saman. Í sumum frásögnum er að finna napólska lífsspeki sem ég hef síðan þýtt yfir á íslensku, svo allir lesendur geti skilið. Ég skrifaði sjálfur þessar sögur á íslensku, og þar sem ég er ekki móðurmálsmælandi gætu slæðst inn örfáar málfræðivillur. Fyrir það bið ég lesendur mína velvirðingar - og vona að hlýja sagnanna vegi upp á móti öllum slíkum smáatriðum. Því að í lokin skipta ekki mestu orðin sjálf, heldur tilfinningarnar sem þau bera með sér.